Fara í efni

Kynning skipulagslýsingar vegna deiliskipulags fyrir Pálsgarð 1 og Útgarð 2 á Húsavík

Sveitarstjórn Norðurþings, að tillögu skipulags- og framkvæmdarráðs, samþykkti á fundi sínum þann 22. september 2020 að kynna skipulagslýsingu skv. 2 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir lóðirnar Pálsgarð 1 og Útgarð 2 á Húsavík. Markmið deiliskipulagsins er að móta stefnu og skilgreina nánari útfærslur fyrir svæðið þar sem áform eru uppi um byggingu 6 íbúða fjölbýlishúss á tveimur hæðum fyrir íbúa 55 ára og eldri og tengja það við núverandi byggð.

Skipulagslýsing þessi er nú til kynningar hér á vef Norðurþings  auk þess sem hún hangir uppi á skrifstofu Norðurþings á Húsavík.

Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 29. október 2020. Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (nordurthing@nordurthing.is).

Skipulagslýsing tillögu að deiliskipulagi