Fara í efni

Sýningaropnun Listamanns Norðurþings 2022

Marta Florczyk, listamaður Norðurþings 2022, opnar sýninguna sína Colors of Love  á sunnudaginn 25. september nk. kl 17:00
Sýningin verður á Fosshótel Húsavík og stendur til 9. október 2022.

Marta er fædd og uppalin í Masúríu í Póllandi og hefur alla tíð verið skapandi og listræn. Hún flutti til Húsavíkur árið 2006 þar sem hún hefur búið síðan með fjölskyldu sinni. Mörtu hefur alltaf fundist hún þurfa að skapa list.  Íslenska náttúran, vindurinn og myrkrið veita henni innblástur að verkunum. Þegar hún málar gleymir hún öllum áhyggjum og finnur leið til að anda og tjá sig frá sínum dýpstu rótum.

Sýningin Colors of Love er þriðja sýning Mörtu á Íslandi. Sýningin samanstendur af 10 málverkum sem öll eru í pastellitum og tákna mismunandi tóna ástarinnar.

Við óskum Mörtu til hamingju með sýninguna og hvetjum íbúa og aðra að bera sýninguna augum.