Fara í efni

Nele Marie Beitelstein ráðin í afleysingu í starf fjölmenningarfulltrúa

Nele Marie Beitelstein hefur verið ráðin til eins árs afleysingar í starf fjölmenningarfulltrúa Norðurþings.

Nele er með BA gráðu Visual arts, music og Fjölmiðlun og MA próf í Hagnýt fjölmiðla og Menningarfræðum frá háskólanum í Merseburg í Þýskalandi.
Nele hefur starfað í ferðaþjónustu og nú síðast í Sundlaug Húsavíkur. Nele hefur sinnt félagsstörfum fyrir Rauða krossinn og hefur einnig kennt jóga.