Fara í efni

Netaveiðileyfi göngusilungs í sjó fyrir landi Húsavíkur 2023

Norðurþing auglýsir laus netaveiðileyfi göngusilungs í sjó í landi Húsavíkur.

Veiðisvæðin eru 10 og eru þau fyrirfram skilgreind. 
Hvert veiðileyfi veitir rétt til lagningu á einu neti á hverju svæði. 
Veiðin er háð þeim lögum og reglugerðum sem gilda um veiðar á göngusilungi.

 Sækja skal um veiðileyfi rafrænt á vef Norðurþings.

 Lög um lax- og silungsveiði

Reglugerð um búnað og frágang neta vegna veiða göngusilungs í sjó

 

Leyfisgjald fyrir hvert veiðileyfi er kr. 12.000,- og greiðist við afhendingu leyfis og fylgigagna. Frekari upplýsingar fást í síma 464-6100.

 Verði umsóknir fleiri en leyfi fyrir hvert veiðisvæði verður dregið úr umsóknum.  Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 18. maí nk. Úthlutun leyfa fer fram næsta virka dag kl. 10:00.

Ketill Gauti Árnason,
Verkefnastjóri framkvæmdasviðs