Fara í efni

Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir fyrir börn á tekjulágum heimilum

Fjölskylduráð Norðurþings vill benda á að umsóknarfrestur vegna sérstaks íþrótta- og tómstundastyrks fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020 -2021 hefur verið framlengdur til 31. júlí 2021.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn.

Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is. Styrkina er hægt er að nota til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Styrkinn má einnig nýta til greiðslu leikjanámskeiða, sumarbúða eða til að greiða keppnisgjald/mótsgjald. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Umsjónarmaður umsókna hjá Norðurþingi er Lára Björg Friðriksdóttir - lara@nordurthing.is

Reglur Norðurþings 
Information in other languages