Fara í efni

Starf sálfræðings skólaþjónustu Norðurþings laust til umsóknar

Skólaþjónusta Norðurþings veitir leik- og grunnskólum í Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Langanesbyggð skólaþjónustu samkvæmt 40. grein laga um grunnskóla og reglugerð 444/2019 um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum.  Megin viðfangsefni þjónustunnar er að styrkja skóla og starfsemi þeirra með ráðgjöf og stuðningi við þróun skólastarfs, kennslu- og nemendaráðgjöf, skimunum, greiningum, og eftirfylgni. Heildarfjöldi nemenda á þjónustusvæði Skólaþjónustu Norðurþings er um 650.

Starfslýsing
50-80% ótímabundin staða sálfræðings við Skólaþjónustu Norðurþings er laus til umsóknar.  Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sálfræðingafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Starfssvið sálfræðings er eftirfarandi:
  • Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla með áherslu á fjölbreyttar þarfir barna.
  • Sálfræðilegar athuganir á börnum vegna frávika í þroska, hegðun og líðan ásamt ráðgjöf um sértæk    úrræði
  • Eftirfylgd og mat á árangri úrræða í samstarfi við kennara og foreldra.
  • Vinnur að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Þverfagleg vinna í þrepaskiptum stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi er skilyrði.
  • Þekking á helstu mælitækjum sem notuð eru í sálfræðilegum athugunum á börnum í leik- og grunnskóla er skilyrði.
  • Reynsla í athugunum á þroska, hegðun og líðan barna er kostur.
  • Færni til að starfa í þverfaglegu teymi ásamt því að miðla þekkingu og veita ráðgjöf til foreldra og kennara er kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni er skilyrði.
  • Æskilegt að viðkomandi sé með bílpróf.

        Umsóknarfrestur er til og með 14. maí  2023.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til yfirsálfræðings Skólaþjónustu Norðurþings  á netfangið ingibjorg@nordurthing.is

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík í síma 464 6100 eða með fyrirspurnum á netfangið nordurthing@nordurthing.is

Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi
og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.