Fara í efni

Starf skólastjóra Öxarfjarðarskóla laust til umsóknar

Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Lundi Öxarfirði. Skólinn er í fallegu umhverfi með náttúrulegum gróðri sem skólinn nýtir mikið til útivistar. Í Öxarfjarðarskóla eru rúmlega 30 grunnskólanemendur og 20 leikskólabörn. Leikskólinn er staðsettur inni í skóla og er mikið samstarf milli leik- og grunnskóla s.s. samsöngur, íþróttir, stærðfræði og myndmennt. Nemendum úr Grunnskóla Raufarhafnar sem er í 62 km fjarlægð frá Öxarfjarðarskóla, er ekið einu sinni í viku í Öxarfjarðarskóla þar sem þeir fá kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum auk tónlistarkenslu á vegum Tónlistarskóla Húsavíkur.

Skólinn starfar eftir uppeldisstefnu Jákvæðs aga og leik- og grunnskóli eiga í samstarfi um verkefnið „Brúum bilið“ þar sem markmiðið er að skapa samfellu í starfi skólana og að börnunum líði vel þegar þau flytjast á milli skólastiga. Þá eru einnig aðferðir Byrjendalæsis nýttar í samstarfi leik- og grunnskóla. 

Fullt starf skólastjóra Öxarfjarðarskóla er laust til umsóknar.  Kjör og kennsluhlutfall er samkvæmt kjarasamningi.

Leitað er að öflugum skólastjóra sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við starfsfólk, foreldra og nemendur. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með samstarfi við Grunnskóla Raufarhafnar og aðrar stofnanir.

Skólastjóri þarf að geta hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og lög um leik- og grunnskóla.
  • Stjórn og ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • Starfsmannamál, s.s. ráðningar, starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Óskað er sérstaklega eftir skólastjóra sem er áreiðanlegur, hefur leiðtogahæfni, sýnir frumkvæði, er ábyrgur, skapandi og lausnamiðaður.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í leik- og grunnskóla.
  • Kennslureynsla á grunnskólastigi.
  • Kennslureynsla af samkennslu árganga er mikilvæg.
  • Þekking á leikskólastarfi er mikilvæg
  • Mikil samskiptahæfni, góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og aðlögunarhæfni.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í leik- og/eða grunnskólastarfi er æskileg.
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina er kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 3 2023.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings, jon@nordurthing.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsókna og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda ásamt prófskírteinum og leyfisbréfi.

Norðurþing áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

Gerð er krafa um hreina sakaskrá og heimild til að afla upplýsinga þar að lútandi.

Nánari upplýsingar veitir fræðslufulltrúi Norðurþings í síma 464-6123 eða með því að svara fyrirspurnum sem sendar eru á netfangið jon@nordurthing.is