Fara í efni

Stóri plokkdagurinn

Stóri plokkdagurinn verður haldin sunnudaginn 30. apríl næst komandi og það verður í sjötta sinn sem dagurinn er haldin hátíðlegur. 

Við hvetjum íbúa Norðurþings til að taka þátt, líta í kringum sig og plokka rusl.
Plokk er góð útivera, góð samvera og allir geta tekið þátt. 
Við bendum á vefsíðuna www.plokk.is 

Stóri hreinsunardagurinn í Norðurþingi verður haldinn í maí og verður auglýstur þegar nær dregur