Fara í efni

Ráðning sveitarstjóra Norðurþings

Ráðning sveitarstjóra Norðurþings

Nýlega var starf sveitarstjóra Norðurþings auglýst laust til umsóknar. Umsóknarfrestur rann út 26. júní síðastliðinn. Alls sóttu 17 um stöðuna og fimm drógu umsókn sína til baka. Við þökkum umsækjendum kærlega fyrir sýndan áhuga á sveitarfélaginu.

Ákveðið hefur verið að ráða Katrínu Sigurjónsdóttur sem sveitarstjóra Norðurþings og mun hún hefja störf í upphafi ágústmánaðar. Katrín er fædd árið 1968 og er fyrrverandi sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Sölku-fiskmiðlunar hf. auk þess að hafa verið kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Þá hefur hún stundað nám í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.

Ráðningarsamningur tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur á fundi byggðarráðs Norðurþings.

"Ég er þakklát sveitarstjórn fyrir það traust að ráða mig í starf sveitarstjóra Norðurþings. Mér finnst Norðurþing mjög spennandi sveitarfélag, víðfemt og þar er mikil náttúrufegurð. Hvað varðar atvinnumál og uppbyggingu sé ég mikil tækifæri víða í sveitarfélaginu og ég hef fylgst að hluta til með því sem er í gangi í gegnum fundargerðir og íbúafundi. Ég hlakka mikið til að vinna fyrir sveitarfélagið og fylgja eftir samþykktum og áætlunum sveitarstjórnar. Þá finnst mér spennandi að flytjast í Norðurþing og kynnast nýju samfélagi. Það verður gott að koma að loknu sumarfríi og takast á við ný og spennandi verkefni með samstarfsfólki, sveitarstjórn og íbúum Norðurþings." segir Katrín.

Við bjóðum hana velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins og samvinnunnar.