Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar 2022 - Kjörstaðir

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 14. maí 2022.

Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 14. maí 2022, hafa allir 18 ára og eldri sem eru á
kjörskrá. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Norðurþingi er skipt niður í 5 kjördeildir, skv. eftirfarandi:

• Kjördeild I og II – Borgarhólsskóla Húsavík
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00.
Inngangur að austanverðu, gengt FSH og Íþróttahöllinni.

• Kjördeild III – Skúlagarði
Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

• Kjördeild IV – Skólahúsinu Kópaskeri
Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

• Kjördeild V – Ráðhúsinu á Raufarhöfn
Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Aðsetur yfirkjörstjórnar verður í Borgarhólsskóla á Húsavík á kjördag.
Talning atkvæða fer fram á sama stað.

Um undirbúning, framkvæmd og frágang sveitarstjórnarkosninga fer eftir kosningalögum  nr. 112/2021

Allar nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar, s.s. kjörskrá, lög
og leiðbeiningar er hægt að nálgast á upplýsingavefnum www.kosning.is

Einnig veita skrifstofur og Yfirkjörstjórn Norðurþings nánari upplýsingar.

Upplýsingar á ensku má finna hér

Upplýsingar á pólsku má finna hér


Yfirkjörstjórn Norðurþings

Karl Hreiðarsson
Berglind Ósk Ingólfsdóttir
Berglind Ragnarsdóttir