Fara í efni

Bæjarráð Norðurþings

119. fundur 16. október 2014 kl. 16:00 - 17:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Óli Halldórsson formaður
  • Friðrik Sigurðsson varaformaður
  • Jónas Hreiðar Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Soffía Helgadóttir 3. varamaður
  • Guðbjartur Ellert Jónsson fjármálastjóri
  • Kristján Þór Magnússon bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson Fjármálastjóri - og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá

1.819. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 201410009Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð 819. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.820. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 201410071Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð 820. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Aðalfundur Eyþings 3. og 4. október 2014

Málsnúmer 201409116Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð og ályktanir aðalfundar Eyþings frá 3. og 4. október s.l. Lagt fram til kynningar.

4.Ályktanir frá hafnasambandsþingi 4. og 5. september síðastliðnum

Málsnúmer 201410017Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð og ályktanir frá Hafnasambandsþingi frá 4. og 5. september s.l. Lagt fram til kynningar.

5.Félag eldri borgara á Húsavík og nágrennis, umsókn um styrk

Málsnúmer 201410070Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur styrkbeiðni frá félagi eldri borgara á Húsavík og nágrennis. Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2015.

6.Innanríkisráðuneyti, drög að reglugerð um umdæmamörk og starfsstöðvar nýrra lögregluembætta og sýslumannsembætta til umsagnar

Málsnúmer 201410059Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggja til umsagnar frá Innanríkisráðuneytinu drög að reglugerð um umdæmamörk og starfsstöðvar nýrra lögregluembætta og sýslumannsembætta. Í framlögðum drögum að reglugerðum um umdæmi sýslumanna og lögreglu, er unnið út frá þeirri meginreglu yfir allt landið að innan hvers landshluta fyrir sig sé aðalskrifstofa sýslumanns og lögreglustjóra á sitt hvorum staðnum innan héraðs. Á Norðausturlandi er þessi stefna útfærð í áðurnefndum drögum þannig að lögreglustjóri fyrir svæðið muni starfa á Akureyri og aðalskrifstofa sýslumanns verði á Húsavík. Þegar hafa verið ráðnir embættismenn í bæði störf yfirmanna þessara stofnana á þessum forsendum. Bæjarráð Norðurþings gerir ekki athugasemd við þessa stefnu dómsmálaráðherra og innanríkisráðherra, enda hefur hún legið fyrir um nokkurn tíma og verið kynnt vel fyrir íbúum og sveitarstjórnum.

7.Alþjóðaflug til norðausturlands

Málsnúmer 201410082Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur erindi til umfjöllunar vegna eflingar á millilandaflugi á Norðausturlandi.
Bæjarráð tekur undir ályktun aðalfundar SSA sem haldinn var í Fjarðarbyggð í september þar sem stjórnin hvetur stjórnvöld til að auka stuðning við uppbyggingu ferðaþjónustu og grunnstoðir hennar sem sannarlega hefur skilað árangri og skipt sköpum fyrir þessa atvinnugrein. Mikilvægt er að byggt verði á þeim góða árangri sem þegar hefur náðst og að markvisst verði unnið að því að dreifa auknum fjölda ferðamanna um landið allt. Liður í þeirri viðleitni er að markaðssetja Egilsstaðaflugvöll til erlendra flugfélaga sem valkost við Keflvíkurflugvöll.
Bæjarráð Norðurþings áréttar við stjórnvöld mikilvægi þess að fleiri en ein fluggátt fyrir alþjóðaflug sé inn í landið vegna aukningar ferðamanna og ekki síst öryggisins vegna. Á Norðausturlandi eru tveir millilandaflugvellir, lítið nýttir sem slíkir, en full ástæða er til að nýta þá betur með stuðningi stjórnvalda.

Fundi slitið - kl. 17:00.