Fara í efni

Bæjarstjórn Norðurþings

40. fundur 03. október 2014 kl. 15:30 - 15:45 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Friðrik Sigurðsson Forseti
  • Olga Gísladóttir aðalmaður
  • Örlygur Hnefill Örlygsson aðalmaður
  • Gunnlaugur Stefánsson aðalmaður
  • Soffía Helgadóttir aðalmaður
  • Kjartan Páll Þórarinsson aðalmaður
  • Óli Halldórsson aðalmaður
  • Sif Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Anna Ragnarsdóttir varamaður
  • Guðbjartur Ellert Jónsson fjármálastjóri
  • Kristján Þór Magnússon bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson Fjármálastjóri - og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
Olga Gísladóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað á Kópaskeri

1.Lánasamningur milli Lánasjóðs sveitarfélaga og Norðurþings

Málsnúmer 201410006Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarstjórn liggur lánasamningur milli Lánasjóðs sveitarfélaga og Norðurþings vegna endurfjármögnunar á eignarhlut sveitarfélagsins í Sorpsamlagi Þingeyinga ehf. Upphæð lánasamningsins er í samræmi og samkvæmt eignarhlut Norðurþings í félaginu. Bæjarstjórn Norðurþings samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 197.950.000.- krónur til 8 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mbr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna hluta Sorpsamlags Þingeyinga ehf., sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Kristjáni Þór Magnússyni, kt. 120279-44599, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Norðurþings að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. Fyrirliggjandi lánasamningur samkvæmt ofanrituðu samþykktur samhljóða.

Fundi slitið - kl. 15:45.