Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Grænuvellir - Foreldrakönnun 2026
Málsnúmer 202603055Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur niðurstaða foreldrakönnunar Grænuvalla 2026.
Lagt fram til kynningar.
2.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202603047Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Tinna Stefánsdóttir sækir um 100.000kr styrk til að halda Tónlistarbingó í félagsheimilinu Hnitbjörg á Raufarhöfn í ágúst 2026.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið um 50.000 kr.
3.Víkingurinn 2026
Málsnúmer 202603060Vakta málsnúmer
Íslenskir kraftmenn, félag óska eftir samstarfi í tengslum við Víkingurinn 2026. Óskað er eftir gistingu og aðstöðu fyrir aðstandendur og keppendur, sem og eina máltíð, ásamt styrk að upphæð 250.000 kr.
Fjölskylduráð sér sér ekki fært að taka þátt í verkefninu.
4.Skipulag starfssemi í nýju frístundarhúsi
Málsnúmer 202603062Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skipulag á starfssemi í nýju frístundarhúsi.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra á velferðarsviði í samráði við stjórnendur á velferðarsviði að skipuleggja starfssemi í nýju frístundarhúsi.
5.Sumarfrístund á Húsavík 2026
Málsnúmer 202603063Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar fyrirkomulag á starfsemi sumarfrístundar á Húsavík sumarið 2026.
Lagt fram til kynningar.
6.Bréf vegna sumarvinnu fatlaðra unglinga 16 til 18 ára
Málsnúmer 202603026Vakta málsnúmer
Fyrir liggur til kynningar tillögur að útfærslu á sumarvinnu 16-18 ára ungmenna með sértækar stuðningsþarfir.
Fjölskylduráð samþykkir eftirfarandi tillögu:
Sumarstörf 16-18 ára ungmenna með sértækar stuðningsþarfir - fyrirkomulag:
Í boði fyrir einstaklinga sem eiga rétt á því að vera í Borginni og fædd 2008,2009,2010.
Helsta verkefni þeirra sem óska eftir sumarstarfi verður bílastæðavarsla í miðbæ Húsavíkur. Mögulega önnur tilfallandi verkefni fyrir Norðurþing.
Gert er ráð fyrir 2 tíma vinnudegi og mun heildartímafjöldi fara eftir fæðingarári:
2008 - 50 tímar (5 vikur) - vinnutími á tímabilinu maí-júní
2009 - 40 tímar (4 vikur) - júní/júlí
2010 - 30 tímar (3 vikur) - júlí
Gert er ráð fyrir að starfsmaður fylgi einstaklingum þeim til stuðnings.

Fundi slitið - kl. 10:00.
Ólöf Rún Pétursdóttir, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir lið 2.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 3 - 6.
Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir lið 6.