Fara í efni

Bréf vegna sumarvinnu fatlaðra unglinga 16 til 18 ára

Málsnúmer 202603026

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 237. fundur - 10.03.2026

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Irisi M. Waitz vegna sumarvinnu 16- 18 ára ungmenna með sértækar stuðningsþarfir.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði og félagsmálastjóra að skoða mögulegar útfærslur á sumarvinnu á starfsstöðvum Norðurþings fyrir 16-18 ára ungmenni með sértækar stuðningsþarfir, sem rúmast innan núverandi fjárhagsheimilda og leggja fyrir ráðið.

Fjölskylduráð - 238. fundur - 17.03.2026

Fyrir liggur til kynningar tillögur að útfærslu á sumarvinnu 16-18 ára ungmenna með sértækar stuðningsþarfir.
Fjölskylduráð samþykkir eftirfarandi tillögu:

Sumarstörf 16-18 ára ungmenna með sértækar stuðningsþarfir - fyrirkomulag:
Í boði fyrir einstaklinga sem eiga rétt á því að vera í Borginni og fædd 2008,2009,2010.
Helsta verkefni þeirra sem óska eftir sumarstarfi verður bílastæðavarsla í miðbæ Húsavíkur. Mögulega önnur tilfallandi verkefni fyrir Norðurþing.
Gert er ráð fyrir 2 tíma vinnudegi og mun heildartímafjöldi fara eftir fæðingarári:
2008 - 50 tímar (5 vikur) - vinnutími á tímabilinu maí-júní
2009 - 40 tímar (4 vikur) - júní/júlí
2010 - 30 tímar (3 vikur) - júlí
Gert er ráð fyrir að starfsmaður fylgi einstaklingum þeim til stuðnings.