Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Borgarhólsskóli - Morgunverður nemenda.
Málsnúmer 202411073Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar tillögur að fyrirkomulagi morgunverðar í Borgarhólsskóla 2026-2027.
Skólastjóri kynnti hugmynd að útfærslu morgunverðar fyrir næsta skólaár.
2.Öldungaráð 2022-2026
Málsnúmer 201806213Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fundargerð 5.fundar Öldungaráðs Norðurþings til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.Trúnaðarmál
4.Bréf vegna sumarvinnu fatlaðra unglinga 16 til 18 ára
Málsnúmer 202603026Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Irisi M. Waitz vegna sumarvinnu 16- 18 ára ungmenna með sértækar stuðningsþarfir.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði og félagsmálastjóra að skoða mögulegar útfærslur á sumarvinnu á starfsstöðvum Norðurþings fyrir 16-18 ára ungmenni með sértækar stuðningsþarfir, sem rúmast innan núverandi fjárhagsheimilda og leggja fyrir ráðið.
5.Ársreikningur Skotfélags Húsavíkur 2025
Málsnúmer 202603013Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskuldráði liggur til kynningar ársreikningur Skotfélags Húsavíkur 2025
Lagt fram til kynningar.
6.Vinnuskóli Norðurþings 2026
Málsnúmer 202603014Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir fyrirkomulag og áætlun um Vinnuskóla Norðurþings sumarið 2026.
Verkefnastjóri á velferðarsviði kynnti starfsemi vinnuskóla Norðurþings fyrir komandi sumar. Fjölskylduráð samþykkir eftirfarandi laun starfsmanna vinnuskóla og vinnutíma: Ungmennni fædd 2011 - 1.433 kr. klst, vinnutími samtals 5 vikur (8.6 - 10.7) Ungmenni fædd 2012 - 1.114 kr. klst, vinnutími samtals 4 vikur ( 29.6 - 24.7) Ungmenni fædd 2013 - 796 kr. klst, vinnutími samtals 3 vikur (8.6 - 26.6) Launataxtar eru reiknaðir út í hlutfalli út frá launaflokki 117 í kjarasamning SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem er í gildi frá 1.apríl 2026 til 31.mars 2027. Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að auglýsa starfsemi vinnuskólans á komandi sumri og vinna málið áfram.
7.Samkomulag um hreyfiverkefni - endurnýjun
Málsnúmer 202512059Vakta málsnúmer
Fyrir liggur til samþykktar nýr þriggja ára samningur við Íþróttafélagið Þingeying.
Fjölskylduráð samþykkir nýjan þriggja ára samning við Íþróttafélagið Þingeying. Ráðið felur verkefnastjóra velferðarsviðs að ganga frá samningnum og kynna fyrir íbúum í kjölfar undirritunar.
8.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202603007Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð frá Hvalasafninu á Húsavík. Safnið sækir um 100.000kr styrk vegna nýrrar sýningar um náhvalinn.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 100.000 kr.
9.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202603018Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð frá Karlakórnum Hreimi. Kórinn sækir um 100.000kr styrk vegna Vorfagnaðar í Ýdölum 25. apríl 2026.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 100.000 kr.
10.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202603010Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur endurnýjuð umsókn í lista- og menningarsjóð frá Örlygi Hnefli Örlygssyni. Örlygur sækir um 100.000kr styrk vegna yfirlitssýningar á verkum Thors Vilhjálmssonar og Tryggva Ólafssonar.
Fjölskylduráð samþykkti áður úthlutun upp á 70.000kr v. verkefnisins. Að ósk umsækjanda skal sú úthlutun falla niður og ný umsókn tekin fyrir.
Fjölskylduráð samþykkti áður úthlutun upp á 70.000kr v. verkefnisins. Að ósk umsækjanda skal sú úthlutun falla niður og ný umsókn tekin fyrir.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 100.000 kr.
11.Endurskoðun reglna um lista- og menningarsjóð
Málsnúmer 202603015Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja reglur um lista- og menningarsjóð til endurskoðunar.
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um lista- og menningarsjóð og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Sunna Mjöll Bjarnadóttir, staðgengill deildastjóra félagslegrar heimaþjónustu, sat fundinn undir lið 3.
Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir lið 4.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 4 - 7.
Ólöf Rún Pétursdóttir, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 8 - 11.