Vinnuskóli Norðurþings 2026
Málsnúmer 202603014
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 237. fundur - 10.03.2026
Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir fyrirkomulag og áætlun um Vinnuskóla Norðurþings sumarið 2026.
Verkefnastjóri á velferðarsviði kynnti starfsemi vinnuskóla Norðurþings fyrir komandi sumar. Fjölskylduráð samþykkir eftirfarandi laun starfsmanna vinnuskóla og vinnutíma: Ungmennni fædd 2011 - 1.433 kr. klst, vinnutími samtals 5 vikur (8.6 - 10.7) Ungmenni fædd 2012 - 1.114 kr. klst, vinnutími samtals 4 vikur ( 29.6 - 24.7) Ungmenni fædd 2013 - 796 kr. klst, vinnutími samtals 3 vikur (8.6 - 26.6) Launataxtar eru reiknaðir út í hlutfalli út frá launaflokki 117 í kjarasamning SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem er í gildi frá 1.apríl 2026 til 31.mars 2027. Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að auglýsa starfsemi vinnuskólans á komandi sumri og vinna málið áfram.