Fara í efni

Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202603010

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 237. fundur - 10.03.2026

Fyrir fjölskylduráði liggur endurnýjuð umsókn í lista- og menningarsjóð frá Örlygi Hnefli Örlygssyni. Örlygur sækir um 100.000kr styrk vegna yfirlitssýningar á verkum Thors Vilhjálmssonar og Tryggva Ólafssonar.
Fjölskylduráð samþykkti áður úthlutun upp á 70.000kr v. verkefnisins. Að ósk umsækjanda skal sú úthlutun falla niður og ný umsókn tekin fyrir.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 100.000 kr.