Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Grænuvellir - Leikskóladagatal 2026-2027
Málsnúmer 202603143Vakta málsnúmer
Leikskóladagatal Grænuvalla er aftur lagt fram til samþykktar með breytingum vegna frekari samræmingar við skóladagatal við Borgarhólsskóla.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi breytingar á skóladagatali Grænuvalla. Skóladagatal verður birt á vefsíðu leikskólans.
2.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202309129Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til endurskoðunar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning í tengslum við breytingar Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins á viðmiðunarfjárhæðum vegna mats á áhrifum tekna og vegna mats á áhrifum eigna.
Fjölskylduráð samþykkir breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í tengslum við breytingar Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins á viðmiðunarfjárhæðum vegna mats á áhrifum tekna og eigna og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
3.Farsæld barna
Málsnúmer 202512043Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til kynningar starfsreglur um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, verklagsreglur málstjóra farsældar í félagsþjónustu og verklagsreglur tengiliðar farsældar í leik- og grunnskólum.
Fjölskylduráð samþykkir starfsreglur um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
4.Leik og sprell á Húsavík og Kópaskeri
Málsnúmer 202604049Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur beiðni frá Báru Lind Þórarinsdóttur um endurgjaldslaus afnot af litla sal þróttahússins á Húsavík og íþróttahúsinu á Kópaskeri v. söng- og leiklistanámskeiðsins Leik og sprell. Jafnframt er óskað eftir undanþágu á ráðstöfun frístundastyrks.
Fjölskylduráð samþykkir endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsum sveitarfélagsins. Ráðið hafnar því að veita undanþágu á ráðstöfun frístundarstyrks.
5.Öldungamót í blaki 2027
Málsnúmer 202603139Vakta málsnúmer
Fyrir hönd blakdeildar Völsungs óskar Andri Hnikarr Jónsson eftir samstarfi og stuðningi sveitarfélagsins við Öldungamót í blaki 21.-25. apríl 2027.
Fjölskylduráð samþykkir afnot af íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins og felur verkefnastjóra á velferðarsviði að kanna lausnir og kostnað við að fjölga blakvöllum.
6.Ungmennaráð 2025-2026
Málsnúmer 202602020Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar fundargerð 16.fundar Ungmennaráðs Norðurþings þann 23.mars 20026
Fjölskylduráð þakkar ungmennaráði fyrir góða fundargerð.
Fjölskylduráð beinir því til sviðstjóra að bókun í lið nr. 6 í fundargerð ungmennaráðs verði höfð til hliðsjónar við skipulagningu á notkun og starfsemi í nýju frístundarhúsi.
Fjölskylduráð vísar því sem við á í lið nr. 7 til skipulags og framkvæmdaráðs.
Sviðstjóra er falið að kynna fyrir skólastjórnendum fundargerð ungmennaráðs.
Fjölskylduráð beinir því til sviðstjóra að bókun í lið nr. 6 í fundargerð ungmennaráðs verði höfð til hliðsjónar við skipulagningu á notkun og starfsemi í nýju frístundarhúsi.
Fjölskylduráð vísar því sem við á í lið nr. 7 til skipulags og framkvæmdaráðs.
Sviðstjóra er falið að kynna fyrir skólastjórnendum fundargerð ungmennaráðs.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir lið 2.
Anna Björg Leifsdóttir, Ráðgjafi í málefnum barna og fjölskyldna, sat fundinn undir lið 3.
Ólöf Rún Pétursdóttir, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir lið 4.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 5 og 6.