Öldungamót í blaki 2027
Málsnúmer 202603139
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 240. fundur - 21.04.2026
Fyrir hönd blakdeildar Völsungs óskar Andri Hnikarr Jónsson eftir samstarfi og stuðningi sveitarfélagsins við Öldungamót í blaki 21.-25. apríl 2027.
Fjölskylduráð samþykkir afnot af íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins og felur verkefnastjóra á velferðarsviði að kanna lausnir og kostnað við að fjölga blakvöllum.