Fara í efni

Fjölskylduráð

241. fundur 05. maí 2026 kl. 08:30 - 10:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Kristinn Jóhann Lund formaður
  • Alexander Gunnar Jónasson varaformaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir aðalmaður
  • Hanna Jóna Stefánsdóttir aðalmaður
  • Jónas Þór Viðarsson aðalmaður
  • Ísak Már Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Höskuldsson sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Lára Björg Friðriksdóttir félagsmálastjóri
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 2-7.

Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir lið 8.

1.Umsjón með notkun skólahúsnæða á Kópaskeri og Raufarhöfn.

Málsnúmer 202603012Vakta málsnúmer

Fyrirkomulag húsumsjónar skólahúsnæðanna á Kópaskeri og Raufarhöfn er lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar

2.Skipulag starfssemi í nýju frístundarhúsi

Málsnúmer 202603062Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð fól á fundi sínum þann 17. mars sl. sviðsstjóra á velferðarsviði í samráði við stjórnendur á velferðarsviði að skipuleggja starfsemi í nýju frístundarhúsi.
Skipulag starfseminnar er nú lagt fram til kynningar.
Skipulag í nýju frístundarhúsi lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð felur stjórnendum á velferðarsviði að auglýsa eftir tillögum að nöfnum á nýju húsnæði sem og á frístund, sá hópur velur 2-3 nöfn úr innsendum tillögum sem síðan verði kosið um af nemendum í Borgarhólsskóla og Framhaldsskólanum á Húsavík.

3.Tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna

Málsnúmer 202604124Vakta málsnúmer

Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra á velferðarsviði að tilnefna samþættingarverkefnið í flokknum framúrskarandi þróunarverkefni.

4.Erindi frá Hestamannafélaginu Feyki

Málsnúmer 202604119Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir ósk frá Hestamannafélaginu Feyki um styrk vegna æskulýðsstarfs félagsins árið 2026.
Fjölskylduráð samþykkir styrkveitingu að upphæð 280.000 kr. og að félagið fái að nota frístundarstyrki í starfi félagsins.

5.Endurnýjun samnings við Skákfélagið Goðinn

Málsnúmer 202604120Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja fyrir drög að endurnýjuðum samningi við Skákfélagið Goðann til tveggja ára.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að ganga frá samningi við skákfélagið Goðann miðað við fyrirliggjandi samningsdrög.

6.Umsóknir úr afreks og viðurkenningarsjóði 2026

Málsnúmer 202604115Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur til umfjöllunar umsóknir í Afreks- og viðurkenningarsjóð Norðurþings.
Fjölskylduráð samþykkir eftirfarandi styrki úr afreks- og viðurkenningarsjóði.

Úthlutun vegna umsókna um afreksefni:

Sigrún Marta Jónsdóttir 120.000 kr.
Hreinn Kári Erluson 120.000 kr.
Inga Björg Brynjúlfsdóttir 120.000 kr.

Styrkveiting til landsliðsfólks vegna þátttöku í landsleikjum er 20.000 kr. á einstakling, eftirtaldir einstaklingar spiluðu landsleik á árinu 2025:

Sigrún Marta Jónsdóttir, blak
Hreinn Kári Erluson, blak
Inga Björg Brynjúlfsdóttir, blak
Sigurður Helgi Brynjúlfsson, blak
Auður Ósk Kristjánsdóttir, knattspyrna
Ísabella Anna Kjartansdóttir, knattspyrna
Þórarinn Örn Jónsson, blak
Aron Bjarki Kristjánsson, blak

Fjölskylduráð óskar afreksfólki til hamingju með árangurinn á árinu 2025.

7.Samþætting ársskýrsla veturinn 2025-26

Málsnúmer 202604125Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir til kynningar ársskýrsla samþættingar fyrir veturinn 2025-26.
Lagt fram til kynningar.

8.Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði um almenna og sértæka félagsþjónustu

Málsnúmer 202309125Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja drög að endurnýjun samnings um sameiginlegt þjónustusvæði um almenna og sértæka félagsþjónustu.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.

9.Leikfélag Húsavíkur, besta áhugaleiksýning ársins

Málsnúmer 202605007Vakta málsnúmer

Sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ásdís Þórhallsdóttir tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í lok Bandalagsþings í Reykjanesbæ nú um helgina. Halla Rún Tryggvadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Leikfélags Húsavíkur. Þjóðleikhúsið býður Leikfélagi Húsavíkur að sýna Rocky Horror á sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 13. júní næstkomandi.
Fjölskylduráð óskar Leikfélagi Húsavíkur til hamingju með viðurkenninguna Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026. Ráðið vill jafnframt þakka Leikfélagi Húsavíkur fyrir mikilvægt framlag til menningarstarfs í sveitarfélaginu.

Fundi slitið - kl. 10:30.