Fara í efni

Leikfélag Húsavíkur, besta áhugaleiksýning ársins

Málsnúmer 202605007

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 241. fundur - 05.05.2026

Sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ásdís Þórhallsdóttir tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í lok Bandalagsþings í Reykjanesbæ nú um helgina. Halla Rún Tryggvadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Leikfélags Húsavíkur. Þjóðleikhúsið býður Leikfélagi Húsavíkur að sýna Rocky Horror á sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 13. júní næstkomandi.
Fjölskylduráð óskar Leikfélagi Húsavíkur til hamingju með viðurkenninguna Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026. Ráðið vill jafnframt þakka Leikfélagi Húsavíkur fyrir mikilvægt framlag til menningarstarfs í sveitarfélaginu.

Byggðarráð Norðurþings - 521. fundur - 21.05.2026

Leikfélag Húsavíkur óskar eftir stuðningi vegna ferðar í Þjóðleikhúsið þann 13. júní 2026, en sýning félagsins á Rocky Horror var valin áhugaverðasta sýning áhugaleikfélaga árið 2026.

Hópurinn telur 45 félaga á aldrinum 14 til rúmlega 70 ára og ljóst er að ferðakostnaður, gisting og fæði vegna ferðarinnar verða stórir útgjaldaliðir. Einnig er kostnaður við flutninga á efni og efniskaup.
Byggðarráð óskar Leikfélaginu til hamingju með heiðurinn sem félaginu er sýndur.

Byggðarráð samþykkir að styrkja Leikfélag Húsavíkur um 750.000 kr. vegna ferðarinnar í Þjóðleikhúsið.

...og loksins endar þetta sjabbý subbu show.