Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

521. fundur 21. maí 2026 kl. 08:15 - 10:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varaformaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Benóný Valur Jakobsson áheyrnarfulltrúi
  • Áki Hauksson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Viljayfirlýsing um uppbyggingu gagnavers á Bakka

Málsnúmer 202508022Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur tillaga um að virkja 13. gr. c lið í viljayfirlýsingu Norðurþings við GIGA-42. Með því verði Norðurþingi heimilt innan 30 daga að gera viljayfirlýsingar við önnur gagnaversverkefni jafnframt því að viljayfirlýsing við GIGA-42 verði áfram í gildi án einkaréttarákvæðis.

Á fund byggðarráðs kl. 08:30 kom Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka.
Byggðarráð samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu.

2.Beiðni um fjárhagsstuðning við Skógræktarfélag Húsavíkur

Málsnúmer 202510084Vakta málsnúmer

Við styrkveitingu byggðarráðs til Skógræktarfélag Húsavíkur um 500.000 kr á árinu 2026 til grisjunar óskaði ráðið eftir að fá tillögur félagsins um það hvaða svæði verði grisjuð á árinu.

Á fund byggðarráðs komu kl. 08:45 Þröstur Eysteinsson og Árni Sigurbjarnarson frá Skógræktarfélagi Húsavíkur og fóru yfir starfsáætlun félagins fyrir árið 2026, bæði hvað varðar landgræðslu og grisjun.
Byggðarráð þakkar Þresti og Árna fyrir komuna á fundinn og greinargóðar upplýsingar.

3.Erindi vegna slita Héraðsnefndar Þingeyinga

Málsnúmer 202404123Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur úthlutunargerð slitanefndar Héraðsnefndar Þingeyinga og tvær tillögur að skiptingu eigna.

Tillaga a felur í sér skiptingu eigna nefndarinnar annarra en fasteigna til aðildarsveitarfélaganna eftir íbúafjölda, Þingeyjarsveit kaupi fasteignir nefndarinnar. Norðurþing yfirtaki lífeyrisskuldbindingar nefndarinnar og á móti komi handbært fé.

Tillaga b felur í sér skiptingu allra eigna nefndarinnar til aðildarsveitarfélaganna eftir íbúafjölda. Norðurþing yfirtaki lífeyrisskuldbindingar nefndarinnar og á móti komi handbært fé.
Byggðarráð leggur til að fasteignir á Laugum gangi til Þingeyjarsveitar, Þingey jörð og lax- og silungsveiðihlunnindi skiptist eftir íbúafjölda á milli Þingeyjarsveitar, Norðurþings og Tjörneshrepps. Norðurþing taki yfir lífeyrisskuldbindingar og á móti komi handbært fé.

Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.

4.Úttekt HMS á Slökkviliði Norðurþings

Málsnúmer 202509088Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur bréf HMS frá 7. maí sl.um eftirfylgni vegna úttektar á starfsemi slökkviliðs Norðurþings sem fór fram þann 20. maí 2025.
Einnig liggur fyrir ráðinu svör slökkviliðsstjóra um úrbætur sem hafa átt sér stað á atriðum í úttektinni.
Lagt fram til kynningar.

5.Leikfélag Húsavíkur, athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins

Málsnúmer 202605007Vakta málsnúmer

Leikfélag Húsavíkur óskar eftir stuðningi vegna ferðar í Þjóðleikhúsið þann 13. júní 2026, en sýning félagsins á Rocky Horror var valin áhugaverðasta sýning áhugaleikfélaga árið 2026.

Hópurinn telur 45 félaga á aldrinum 14 til rúmlega 70 ára og ljóst er að ferðakostnaður, gisting og fæði vegna ferðarinnar verða stórir útgjaldaliðir. Einnig er kostnaður við flutninga á efni og efniskaup.
Byggðarráð óskar Leikfélaginu til hamingju með heiðurinn sem félaginu er sýndur.

Byggðarráð samþykkir að styrkja Leikfélag Húsavíkur um 750.000 kr. vegna ferðarinnar í Þjóðleikhúsið.

...og loksins endar þetta sjabbý subbu show.

6.Ársskýrsla og ársreikningur Norðurhjara 2025

Málsnúmer 202605052Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ársreikningur Norðurhjara 2025 ásamt ársskýrslu félagsins fyrir sama ár.
Lagt fram til kynningar.

7.Beiðni um heimild til að halda flugeldasýningu

Málsnúmer 202605051Vakta málsnúmer

Þekkingarnet Þingeyinga óskar eftir heimild og samþykki landeigenda vegna fyrirhugaðrar flugeldasýningar á Húsavíkurhöfða við Sjóböðin á Húsavík í tengslum við HönnunarÞing 2026, sem fram fer dagana 25. til 26. september 2026.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8.Úttekt á starfsemi og framtíðarfyrirkomulag náttúrustofa

Málsnúmer 202401105Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur ákveðið að skipa starfshóp sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.

Markmið vinnu starfshópsins er að fyrir liggi tillögur sem tryggi markvissari ráðstöfun fjármuna, auki skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bæti fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og tryggi varðveislu og aðgengi að gögnum.
Lagt fram til kynningar.

9.Boð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands

Málsnúmer 202604113Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur boð til sveitarstjórnarfólks um að mæta á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) fimmtudaginn 21. maí frá kl. 11.30 til 13.00 á Grand hótel. Hægt er sækja fundinn eða horfa á hann í streymi.
Lagt fram til kynningar.

10.Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2026

Málsnúmer 202605101Vakta málsnúmer

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 26. maí 2026 kl. 11:30 til 12:30. Fundurinn verður haldinn á Hótel Akureyri.
Lagt fram til kynningar.

11.Endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Málsnúmer 202605044Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur bréf Innviðaráðuneytisins þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.

Óskað er eftir að umsögn sveitarfélagsins berist ráðuneytinu eigi síðar en 26. maí 2026.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda inn umsögn.

12.Staða húsnæðisuppbyggingar í Norðurþingi

Málsnúmer 202605090Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur yfirlit frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, byggt á húsnæðisáætlun 2025.

Samkvæmt samantektinni metur HMS að íbúðauppbygging í Norðurþingi hafi verið meiri en ný íbúðaþörf sem myndaðist árið 2025 og sveitarfélagið hafi útvegað nægilega margar byggingarhæfar lóðir til þess að mæta íbúðaþörf næstu ára.
Lagt fram til kynningar.

13.Ósk um tækifærisleyfi vegna kosningavöku á Naustinu

Málsnúmer 202605027Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi frá Ingunni Ástu Egilsdóttur kt. 120963-4069 vegna kosningavöku á Naustinu Húsavík frá kl. 23:00 þann 16/5 til kl. 03:00 þann 17/5 2026, aldur frá 20 ára.

Veitt jákvæð umsögn innan tímafrests með tölvupósti til byggðarráðs.
Byggðarráð staðfestir umsögn sveitarstjóra.

14.Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi frá Hlöðufell restaurant vegna beiðni um lengri afgreiðslutíma

Málsnúmer 202605064Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um umsögn vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi frá Hlöðufelli Restaurant ehf. þann 30. maí kl. 23:00 til kl. 04:30 þann 31. maí 2026.

Óskað er eftir umsögn eigi síðar en 26. maí nk.
Beiðni umsækjanda um opnunartíma til kl. 04:30 stangast á við ákvæði í 25.gr. Lögreglusamþykktar Norðurþings nr. 780/2018.

Byggðarráð getur því ekki veitt jákvæða umsögn.

15.Til umsagnar 595.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202604094Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.
Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerðir stjórnar Markþings 2026

Málsnúmer 202603068Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Markþings frá 5. maí sl.
Lagt fram til kynningar.

17.Fundargerðir HNE 2026

Málsnúmer 202603056Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 247. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 15.apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

18.Fundargerðir Almannavarnanefndar

Málsnúmer 202305092Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerð vorfundar almannavarnanefndar frá 5. maí sl. og ársreikningur ALNEY 2025.
Lagt fram til kynningar.

19.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 997. fundi frá 17. apríl og 998. fundi frá 8. maí sl.
Lagt fram til kynningar.

20.Fundargerðir SSNE 2026

Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar fundargerð stjórnar SSNE frá 83. fundi þann 7. maí sl.
Lagt fram til kynningar.

21.Þinggerð ársþings SSNE 2026

Málsnúmer 202605098Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur þinggerð ársþings SSNE 2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

22.Fundargerðir Samtaka Sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 202504075Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 94. fundi þann 23. janúar, 95. fundi þann 20. febrúar, 96. fundi þann 3. mars og 97. fundi þann 8. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

23.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202603130Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 91. fundi þann 2. mars og 92. fundi þann 10. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

24.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum.

Málsnúmer 202308046Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, frá 88. fundi þann 21. janúar sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:30.