Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202606041Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Valdimar Kúld Guðmundsson sækir um 600.000 kr til að þróa og framleiða leikna þáttaröð sem gerist á Húsavík.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja Valdimar Kúld Guðmundsson um 50.000 kr.
2.Listamaður Norðurþings 2026
Málsnúmer 202604067Vakta málsnúmer
Umsóknarfrestur til listamanns Norðurþings rann út 18. maí síðastliðinn. Samkvæmt reglum um listamann Norðurþings mun fjölskylduráð velja úr innsendum umsóknum. Í ár verður listamaður Norðurþings þó, í undantekningarskyni, útnefndur á Mærudögum.
Fjölskylduráð velur listamann Norðurþings 2026 úr þeim umsóknum sem bárust í ár.
Listamaður Norðurþings 2026 verður kynntur við hátíðlega athöfn á Mærudögum.
Bókun ráðsins er færð í trúnaðarmálabók.
Listamaður Norðurþings 2026 verður kynntur við hátíðlega athöfn á Mærudögum.
Bókun ráðsins er færð í trúnaðarmálabók.
3.Samningar um stuðning til náms.
Málsnúmer 202606090Vakta málsnúmer
Umsóknir starfsfólks leik- og grunnskóla um stuðning til fjarnáms í menntavísindum eru lagðar fram samkvæmt reglum Norðurþings um stuðning til fjarnáms í menntavísindum og til fagháskólnáms í leikskólakennarafræðum.
Fjölskylduráð samþykkir stuðning til fjarnáms til umræddra starfsmanna. Ráðið lýsir yfir ánægju sinni með þann fjölda starfsfólks skóla Norðurþings sem nýtir sér stuðning sveitarfélagsins til að efla sig enn frekar í starfi.
Samkv 8 gr. reglnanna þurfa umsóknir að berast fyrir 1. júní til viðkomandi skólastofnunnar. Fjölskylduráð gerir undanþágu frá þeirri kröfu og verða reglur um stuðnings til fjarnáms teknar upp og endurskoðaðar.
Samkv 8 gr. reglnanna þurfa umsóknir að berast fyrir 1. júní til viðkomandi skólastofnunnar. Fjölskylduráð gerir undanþágu frá þeirri kröfu og verða reglur um stuðnings til fjarnáms teknar upp og endurskoðaðar.
4.Verslunarmannahelgi - samstarf um forvarnir og öryggi ungmenna
Málsnúmer 202607012Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar erindi forvarnarteymis Akureyrarbæjar varðandi samstarf um forvarnir og öryggi ungmenna um verslunarmannhelgina.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að eiga samtal um forvarnarstarf í samstarfi við sveitarfélög á Norðurlandi.
5.Öldungaráð 2026-2030
Málsnúmer 202606128Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar erindi og kröfugerð frá Landssambandi eldri borgara og tilnefningu í Öldungaráð.
Erindi og kröfugerð frá Landssambandi eldri borgara lögð fram til kynningar.
Félagsmálastjóri óskar eftir tilnefningum frá sveitarstjórn inn í Öldungaráð svo hægt sé að stofna ráðið sem fyrst. Félagsmálastjóra falið að óska eftir tilnefningu frá heilsugæslunni.
Félagsmálastjóri óskar eftir tilnefningum frá sveitarstjórn inn í Öldungaráð svo hægt sé að stofna ráðið sem fyrst. Félagsmálastjóra falið að óska eftir tilnefningu frá heilsugæslunni.
6.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2026-2030
Málsnúmer 202606127Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skipun í notendaráð fatlaðs fólks.
Félagsmálastjóri óskar eftir tilnefningum í notendaráð frá sveitarstjórn. Ráðið felur félagsmálastjóra að óska eftir tilnefningum frá hagsmunasamtökum og heilsugæslunni.
7.Samkomulag við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Málsnúmer 202606117Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:10.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir lið 4.