Fara í efni

Íbúar að Baughól 2 - 10, erindi varðandi trjágróður í skógarlundi við raðhúsið

Málsnúmer 201109039

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 22. fundur - 17.10.2012

Erindið var upphaflega tekið fyrir í framkvæmda- og hafnanefnd á 11. fundi þann 12. okt. sl. og ákvað þá að kynna sér málið frekar og jafnframt óska eftir tillögu frá garðyrkjustjóra um hvernig fara ætti með svæðið. Nefndin fór á staðinn og kannaði aðstæður undir leiðsögn garðyrkjustjóra. Nefndin samþykkir að fela garðyrkjustjóra að hefja vinnu við að gera svæðið að almenningsgarði.