Fara í efni

Hilmar Dúi Björgvinsson sækir um f.h. Kirkjugarða Húsavíkur, afslátt af fasteignagjöldum

Málsnúmer 201203013

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 40. fundur - 08.03.2012

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Hilmari Dúa Björgvinssyni, f.h. Kirkjugarða Húsavíkur þar sem óskað er eftir lækkun eða afslætti af fasteignagjöldum ársins 2012 á Kirkjbæ/Baldursbrekku 22 á Húsavík. Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið en sér sér ekki fært að verða við beiðninni.

Bæjarráð Norðurþings - 43. fundur - 18.04.2012

Fyrir bæjarráði liggur beiðni frá Hilmari Dúa Björgvinssyni, f.h. Kirkjugarða Húsavíkur um styrk til að mæta hækkun fasteignagjalda. Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við beiðninni þar sem ekki er um safnaðarheimili að ræða.