Fara í efni

Fiskistofa, ósk um umsögn vegna rekstrarleyfis til handa Norðurlaxi hf

Málsnúmer 201204034

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 43. fundur - 18.04.2012

Fyrir bæjarráði liggur til umsagnar erindi frá Fiskistofu til handa Norðurlaxi hf. Umsókn Norðurlax hf. um rekstrarleyfi til fiskeldis á Laxamýri og Auðbrekku Húsavík, þar sem leyfilegt framleiðslumagn er allt að 20 tonn af bleikju, lax og regnboga á hvorum stað. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn og hvetur Fiskistofu að veita Norðurlaxi hf. tilskilið rekstrarleyfi. Jón Helgi vék af fundi undir þessum lið.