Fara í efni

Atvinnuveganefnd Alþingis, 727. mál til umsagnar, tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða

Málsnúmer 201204068

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 44. fundur - 03.05.2012

Fyrir bæjarráði liggur til umsagnar erindi frá Atvinnuveganefnd Alþingis - tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða - 727 mál. Norðurþing lýsir andstöðu við að Gjástykki sé i verndarflokki og krefst þess að iðnaðar- og umhverfisráðherra geri breytingar á tillögu til þingsályktunar um verndar- og orkunýtingaráætlun að því er varðar Gjástykki til samræmis við meginniðurstöðu faghópa og gildandi svæðisskipulags háhitasvæða í Þingeyjarsýslum. Bæjarráð vísar til og ítrekar fyrri afstöðu sveitarfélagsins.