Fara í efni

Brynhildur Gísladóttir sækir um leyfi fyrir pylsuvagn á hafnarsvæði á Húsavík

Málsnúmer 201205014

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 18. fundur - 09.05.2012

Brynhildur óskar eftir leyfi, eða a.m.k. viðræðum um mögulega staðsetningu pylsuvagns á Hafnarsvæðinu á Húsavík sumarið 2012, eða frá ca. 15. júní til 1. september. Meirihluti framkvæmda- og hafnanefndar samþykkir að veita stöðuleyfi. Vinnu við nýtt deiliskipulag er ekki lokið en þar er gert ráð fyrir svæðum undir torgsölu. Staðsetning verður ákveðin í samráði við hafnarvörð. Arnar er á móti slíkum stöðuleyfum á hafnarsvæðinu og telur að slík leyfi samrýmist ekki núverandi deiliskipulagi.