Fara í efni

Stefán Guðmundsson f.h. Gentle Giants-Hvalaferðir ehf. óskar eftir leyfi fyrir staðsetningu skúra af Hafnarstétt 5

Málsnúmer 201205040

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 93. fundur - 14.06.2012

Ítrekuð er ósk um leyfi til að færa þrjú gömul sjóhús af lóðinni að Hafnarstétt 5 út á Naustagarð. Nú er í kynningu tillaga að deiliskipulagi miðhafnarsvæðis og í undirbúningsvinnu við skipulagstillöguna voru hugmyndir Stefáns til umfjöllunar. Niðurstaða nefndarinnar var sú að ekki væri heppilegt að gera ráð fyrir húsunum þremur á umbeðnum stað og því er ekki gert ráð fyrir þeim í skipulagstillögunni sem nú er í kynningu.