Fara í efni

Stefán Guðmundsson f.h. Gentle Giants-Hvalaferðir ehf. óskar eftir leiðréttingu á meintu misræmi á gjaldtöku samkeppnisaðila

Málsnúmer 201205041

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 93. fundur - 14.06.2012

Í erindi sínu spyr Stefán hvernig skipulags- og byggingarnefnd hyggist leiðrétta eða gera tillögu að leiðréttingu fyrir 10 ára misræmi milli samkeppnisaðila í hvalaskoðun hvað varðar leigugreiðslur fyrir afnot af þökum Hafnarstéttar við Garðarsbraut. Leigusamningar og greiðslur vegna afnota húsþaka milli hafnarstéttar og Garðarsbrautar eru ekki á forræði skipulags- og byggingarnefndar. Nefndin telur því ekki í sínum verkahring að gera tillögur að leiðréttingu meints misræmis milli kostnaðar hvalaskoðunarfyrirtækja vegna aðstöðu þeirra við Garðarsbraut.