Fara í efni

Trésmiðjan Rein ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhús að Víðimóum 14

Málsnúmer 201206026

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 93. fundur - 14.06.2012

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 1278,0 m² iðnaðarhúsi á lóðinni að Víðimóum 14. Teikning er unnin af Haraldi Árnasyni. Umrædd bygging er lengri en byggingarreitur lóðarinnar heimilar skv. gildu deiliskipulagi. Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur verið falið að grenndarkynna ósk umsækjanda um breytingu á deiliskipulagi sem heimili umsótta byggingu. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að gefa út byggingarleyfi fyrir mannvirkinu þegar og ef breyting deiliskipulagsins gengur í gegn.