Fara í efni

Kristbjörg Sigurðardóttir f.h. Verslunarinnar Bakka ehf. og Víðihóll - orlofsíbúðir, sækir um leyfi til að fjölga bílastæðum við Klifagötu 8, Kópaskeri

Málsnúmer 201210101

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 98. fundur - 14.11.2012

Óskað er eftir leyfi til að gera bílastæði í suðvesturhorni lóðarinnar að Klifagötu 8 eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningu. Með umsókn fylgir skriflegt samþykki nágranna að Klifagötu 6 og Akurgerði 13. Skipulags- og byggingarnefnd fellst á gerð nýs bílastæðis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gera tillögu að nákvæmum mörkum lóðarinnar.