Fara í efni

Gunnlaugur Karl Hreinsson f.h. GPG Seafood óskar eftir stækkun athafnasvæðis félagsins til vesturs og suðurs

Málsnúmer 201306058

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 31. fundur - 10.07.2013

GPG Seafood óskar eftir stækkun athafnasvæðis félagsins á Húsavík. Vísað er til fyrra erindis 201205105 sem tekið var á 19. fundi f&h. Erindið nú er tvíþætt. Annars vegar möguleg stækkun til vesturs með færslu grjótgarðs og hins vegar stækkun til suðurs. Fyrirtækið er til viðræðu um útfærslu á greiðslu kostnaðar við færslu grjótgarðsins.Hafnarstjóri gerði grein fyrir erindinu. Framkvæmda- og hafnanefnd felur hafnarstjóra að leita umsagnar Siglingastofnunar og kanni jafnframt kostnað við verkið.