Fara í efni

Gunnlaugur Karl Hreinsson f.h. GPG Seafood gerir athugasemdir við þjónustu hafnarvogar á Raufarhöfn

Málsnúmer 201306059

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 31. fundur - 10.07.2013

GPG Seafood lýsir yfir vonbrigðum með að opnunartíma hafnarvogar á Raufarhöfn hafi verið breytt frá fyrra skipulagi og óskar eftir að sveitarfélagið hafi samráð við þann aðila sem sér um alla þjónustu á staðnum við ákvarðanatöku sem þessa. Óskað er eftir að opnunartími hafnarvogar á Raufarhöfn sé hinn sami og á öðrum höfnum innan hafna Norðurþings. Þá er óskað eftir viðræðum um framtíðarskipulag hafnarmála á Raufarhöfn. Framkvæmda- og hafnanefnd bendir á að tímabundna ráðstöfun er að ræða sem verður endurskoðuð með haustinu.