Fara í efni

Kynning þátttakenda Norðurþings á ráðstefnunni Nordic Youth Meeting, Rússlandi.

Málsnúmer 201309008

Vakta málsnúmer

Tómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings - 22. fundur - 10.09.2013

Sex ungmenni ásamt leiðtogum fóru til St. Pétursborgar á ráðstefnu á vegum Nordic Youth Meeting, samtaka er stuðla að samskiptum ungmenna milli landa. Ungmennin komu og kynntu hvað var gert á ráðstefnunni. Í kynningu þeirra kom fram mikil ánægja með ferðina og þau tengsl sem þar mynduðst. Þau hvetja til áframhaldandi þátttöku í ungmennasamskiptum milli landa. Einnig kom fram að þau hvetja til þess að haldin verði sambærileg ráðstefna á Húsavík.