Fara í efni

Ósk frá Norðurþingi um að Olíudreifing skili inn lóðinni að Höfða 10

Málsnúmer 201311014

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 86. fundur - 07.11.2013

Fyrir bæjarráði liggur svarbréf Olíudreifingar vegna beiðni sveitarfélagsins um að félagið skili inn lóðinni að Höfða 10 á Húsavík.Í svarbréfi frá félaginu kemur fram að beiðninni er hafnað en jafnframt lýsir félagið sig reiðubúið til viðræðna við sveitarfélagið um lausn og væntir félagið að sveitarfélagið muni hafa frumkvæði að slíkum viðræðum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.