Fara í efni

Stéttarfélagið Framsýn óskar eftir upplýsingum varðandi gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2014

Málsnúmer 201311117

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 88. fundur - 28.11.2013

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Framsýn en þar kemur fram að stjórn og trúnaðarmannaráð hafi samþykkt að óska eftir upplýsingum frá sveitarfélögum á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum hvort áætlað sé í fjárhagsáætlun viðkomandi sveitarfélags að hækka gjaldskrár fyrir árið 2014. Óskað er eftir að svar berist fyrir 6. desember n.k. Við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2014 er ekki gert ráð fyrir raunhækkun gjalda á veigamestu tekjustofnun sveitarfélagsins en endanleg ákvörðun verður tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar í desember.