Fara í efni

Stjórn Félagsheimilisins Heiðarbæjar óskar eftir viðræðum um viðhald eigna

Málsnúmer 201401135

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 93. fundur - 30.01.2014

Fyrir bæjarráði liggur beiðni frá stjórn Félagsheimilis Heiðarbæjar þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um samning vegna viðhaldsverkefna á fasteignum félagsheimilisins. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að koma á viðræðum við stjórn Félagsheimilis Heiðarbæjar. Gunnlaugur Stefánsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.