Fara í efni

Gentle Giants-Hvalaferðir ehf. óska eftir mögulegri framtíðarstaðsetningu við höfnina fyrir skúra sem standa á Hafnarstétt 5

Málsnúmer 201402047

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 40. fundur - 23.04.2014

Fyrir framkvæmda- og hafnanefnd liggur erindi frá Gentle Giants - Hvalaferðir ehf. frá 12. febrúar s.l. þar sem óskað er eftir framtíðarstaðsetningu skúra, sem standa við Hafnastétt 5. Óskað er eftir staðsetningu við höfnina þegar til framkvæmda kemur á lóðinni að Hafnarstétt 5. Ráðgert er að viðhalda skúrunum þegar þeim hefur verið fundinn varanleg staðsetning. Framkvæmda- og hafnanefnd hefur ekki lausa lóð undir skúranna á miðhafnarsvæðinu. Nefndin óskar eftir hugmynd eiganda um staðsetningu utan miðhafnarsvæðisins. Hafnastjóra falið að ræða við bréfritara.