Fara í efni

Þorfinnur Jónsson óskar eftir leyfi til að stofna lóð út úr Ingveldarstöðum ætlaða undir vélageymslu

Málsnúmer 201402103

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 115. fundur - 19.03.2014

Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun 1.020 m² lóðar undir fyrirhugaða vélageymslu á Ingveldarstöðum í Kelduhverfi. Fyrir liggur hnitsettur lóðaruppdráttur. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.

Bæjarstjórn Norðurþings - 34. fundur - 25.03.2014

Fyrir bæjarstjórn liggur til afgreiðslu erindi sem tekið var fyrir á 115. fundi skipulags- og byggingarnefndar. Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar: Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun 1.020 m² lóðar undir fyrirhugaða vélageymslu á Ingveldarstöðum í Kelduhverfi. Fyrir liggur hnitsettur lóðaruppdráttur.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt. Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu skipulags- og byggingarnefndar samhljóða.