Fara í efni

Ábending frá kvenfélaginu Stjörnunni og framfarafélagi Öxarfjarðar vegna Sólstöðuhátíðar á Kópaskeri

Málsnúmer 201404037

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 36. fundur - 14.04.2014

Fyrir fundinum liggur bréf frá Kvenfélaginu Stjörnunni á Kópaskeri og Framfarafélagi Öxarfjarðar þar sem mælst er til þess að fræðslu- og menningarnefnd skipi í sólstöðunefnd vegna Sólstöðuhátíðar á Kópaskeri. Fræðslu- og menningarnefnd hefur áætlað fjárframlag til Sólstöðuhátíðar en hlutast ekki til um skipan nefnda vegna einstakra hátíða innan sveitarfélagsins. Framkvæmdaaðilar hátíða geta leitað ráðgjafar hjá fræðslu- og menningarfulltrúa sé þess þörf.