Fara í efni

Axel Yngvason sækir um byggingarleyfi fyrir gistihús á óstofnaðri lóð úr landi Krossdals

Málsnúmer 201404056

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 121. fundur - 14.10.2014

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir gistihúsi á lóð úr landi Krossdals í Kelduhverfi. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir Vinnueftirlits, Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Eystra og Eldvarnareftirlits Norðurþings. Erindi var móttekið 16. apríl s.l. og samþykkt 30. september s.l. Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við afgreiðslu erindisins.