Fara í efni

Ingunn St. Svavarsdóttir, uppgjör vegna útilistaverksins Dans

Málsnúmer 201405025

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 106. fundur - 15.05.2014

Fyrir bæjarráði liggur styrkbeiðni frá Ingunni St. Svavarsdóttir að upphæð 300.000.- krónur vegna gerð listaverksins "Dansinn". Lokauppgjör vegna verksins er um 4 milljónir króna. Hugmyndavinna að verkinu hósfst fyrir 15. árum. Jafnframt er boð um að koma og taka á móti Dansinum til eignar f.h. Norðurþings á sólstöðum föstudaginn 20. júní n.k. við Presthólalón. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 300.000.- krónur.