Fara í efni

Leikskólinn Grænuvellir, starfsáætlun og skóladagatal skólaárið 2014 - 2015

Málsnúmer 201405032

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 37. fundur - 13.05.2014

Fulltrúar Grænuvalla, Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir skólastjóri, Aðalbjörg Friðbjarnardóttir aðstoðarskólastjóri, Lilja Sigurðardóttir fulltrúi starfsmanna og Bergþóra Höskuldsdóttir fulltrúi foreldra mættu á fundinn.Sigríður Valdís kynnti skóladagatal og starfsáætlun leikskólans vegna skólaársins 2014-2015. Fræðslu- og menningarnefnd staðfestir framlagt skóladagatal og starfsáætlun sem lagt er fram án athugasemda.