Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík óskar eftir umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni fyrir Vallholtsveg 9

Málsnúmer 201406017

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 108. fundur - 26.06.2014

Fyrir bæjarráði liggur beiðni Sýslumannsins á Húsavík vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni fyrir Vallholtsveg 9. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 118. fundur - 01.07.2014

Óskað er umsagnar vegna leyfisveitingar til sölu gistingar að Vallholtsvegi 9 á Húsavík. Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um leyfi til sölu gistingar að Vallholtsvegi 9, enda verði eingöngu leigð út til gistingar þau rými sem ætluð eru til gistingar skv. samþykktum teikningum af húsinu. Örlygur vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.