Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Berki Emilssyni vegna Mærudaga

Málsnúmer 201407051

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 110. fundur - 17.07.2014

Fyrir bæjarráði liggur beiðni frá Sýslumanninum á Húsavík þar sem óskað er eftir umsögn um veitingu tækifærisleyfis til handa Berki Emilssyni f.h. Sölkuveitinga ehf. vegna veitingu veitinga og sölu áfengis á hafnarsvæðinu yfir Mærudaga - Reitur A á Hafnastétt. Er hér um að ræða dagana 24. júlí frá kl. 18:00 til 27. júlí til kl. 03:00 n.k. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að hluta til en samþykkir ekki að áfengissala, utan hefðbundinna leyfisskildra veitingastaða, selji áfengi í torgsölu lengur en til 24:00.