Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Sigrúnu Ingvarsdóttur vegna Mærudaga

Málsnúmer 201407056

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 110. fundur - 17.07.2014

Fyrir bæjarráði liggur beiðni frá Sýslumanninum á Húsavík þar sem óskað er eftir umsögn um veitingu tækifærisleyfi til handa Sigrúnu Ingvarsdóttir f.h. Bryggjukofans vegna sölu á grillmat og sölu á bjór og léttvíni í Bryggjukofanum sem staðsettur er á Hafnarstétt. Er hér um að ræða dagna 24. júlí frá kl. 12:00 til 27. júlí kl. 03:00 n.k. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að hluta til en samþykkir ekki að áfengissala, utan hefðbundinna leyfisskildra veitingastaða, selji áfengi í torgsölu lengur en til 24:00