Fara í efni

Íþróttafélagið Völsungur sækir um styrk vegna ritunar sögu félagsins

Málsnúmer 201409118

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 41. fundur - 15.10.2014

Íþróttafélagið Völsungur sækir um styrk að upphæð kr. 200.000 vegna ritunar sögu félagsins. Félagið verður 90 ára árið 2017 en stefnt er að útgáfu sögu þess árið 2027 er félagið verður 100 ára. Þegar er hafin vinna við efnisöflun og söguritun. Fræðslu- og menningarnefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 50.000 sem greiðist í samræmi við framgang verkefnisins.