Fara í efni

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Olgu Gísladóttur f.h. Stóranúps ehf.

Málsnúmer 201501072

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 130. fundur - 05.02.2015

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Sýslumanninum á Húsavík vegna leyfisveitingar til handa Olgu Gísladóttur f.h. Stóranúps ehf. til sölu gistingar í Lundi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið að því tilskyldu að aðrir sem um leyfið fjalla geri slíkt hið sama.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 125. fundur - 10.02.2015

Óskað er eftir umsögn um leyfisveitingu til hana Stórunúpum ehf fyrir nýju rekstrarleyfi til sölu gistingar í Lundi.

Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu leigð út þau rými til gistingar sem til þess eru ætluð á samþykktum teikningum.