Fara í efni

Guðmundur S. Héðinsson sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhús að Fjöllum 2

Málsnúmer 201503063

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 127. fundur - 14.04.2015

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir nýtt fjárhús við Fjöll 2. Fyrir fundi liggja teikningar af húsinu og afstöðu þess til annara mannvirkja. Einnig liggur fyrir skriflegt samþykki nágranna á Fjöllum 1. Brúttóflötur húss er 642,1 m², þar af um helmingur í haughúskjallara. Brúttórúmmál er 1.934 m³.

Skipulags- og byggingarnefnd heimilar byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.